
Reykjaneshöllin var tekin í notkun 19. febrúar 2000. Rættist þá langþráður draumur íþróttaiðkenda á Reykjanesi um fjölnota íþróttahús. Hægt er að skipta íþróttavellinum í tvo hluta með tjaldi, sem er mjög létt í meðförum. Íþróttasalurinn er hitaður upp með lofti og er þar góð loftræsting. Í þjónustubyggingin er fundarherbergi, fjórir búnings- og baðklefar ásamt annarri aðstöðu. Íþróttasalurinn er 108 m að lengd og 72,6 m á breidd. Hæð hússins yfir hliðarlínum er 5,5 m og yfir miðju vallar er hún 12,5 m. Reykjaneshöllin skiptist í íþróttahús, 7.840m2 og þjónustuhús sem er 252m2. Hjá yngri flokkum er hægt að leika fjóra leiki í einu.
Rekstur Reykjaneshallarinnar heyrir undir Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar.
Framkvæmdastjóri ÍT sviðs er Stefán Bjarkason.
Forstöðumaður hallarinnar er Guðmundur Sighvatsson.
Opið frá 08:00 - 23:00
Gjaldskrá
Heill völlur - kr. 23.000
Hálfur völlur - kr. 11.500
Heill dagur - kr. 178.000
Tímalengd 50 mín
Starfsmenn
Bergþóra Káradóttir
Jóhann Gunnarsson
Kristjana Gísladóttir
Símanúmer og netföng
Forstöðumaður: Guðmundur Sighvatsson
Gsm: 864 6166
Sími: 421 6366
Fax: 421 6377
Netfang: reykjaneshollin@reykjanesbaer.is